Anný,Ástrós,Kristín,Lovísa,Steffý,Viktoría,BjarniReyr,Ásgeir<3

8geits

05.11.2006 18:50:24 / lovísa

út með það.. blööö

Bjarni! Ásgeir!

ég vil fara fá blogg frá ykkur drengir:)

lovísa

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 21:28:16 / ViktoríaSig

Drullupíka

hæhæ:) ég ætla að segja smá frá boston ferðinni minni:D það var ógeðslega gaman, fór á fimtudegi, og vorum lentar um kvöldið. Fórum beint i mollið og inní búðir og tróðum inn fötunum, fengum okkur svo að borða á CaliforniaPizzaKitchen. Svo vöknuðum við snemma á föstudeginum og beint i galleria moll, rússuðum í búðum þar allan dagin, fórum í target og bara gaman. Fengum okkur pizzu þar. Og svo fórum við í mollið aftur og borðuðum kvöldmat á TheCheesecakeFactory. Svo sofnuðum við vel þrettar;D á laugardeginum kíktum við niður í bæ.Fórum i nokkrar búðir þar og svo í galleria moll og svo fengum við okkur að borða á TheCheesecakeFactory og svo fórum við á leikrit sem heitir TheBluemansShow, sem var geggjað, byrjuðum á því að setja klósettband á hausinn á okkur, og svo var ég næstum köfnuð í klósettpappir sem kom hringjandi úr loftinu, vá hvað þetta var skemmtielgt. Mæli með því að sjá það ef þið farið til Boston;D  Á sunnudeginum fórum við í gallerimoll fyrst og svo í annaðmoll fyrir konurnar sem var niðrí bæ:) og svo borðuðum við á kínverskum matsölustað´. Svo fórum við uppá flugvöll seinnipartinn í stórum van. Og svo heim bara:).. það vartar helling i þetta og sum,t er ekki´alveg nákvæmt, en svona næstumþví:). en maría var hálfgerður barandari i þessariferð. Vil þakka henni fyrir góða enskukunnáttu:).. Takk fyrir ferðina allir:D þetta var ógó gaman;D

_

eg og camilla:)

Svo langaði mig að sýna ykkur eitt skemmtilegt samtal sem var á milli mín og helga, við sátum i sitthvoru herberginu herna heima og vorum að tala saman á msn. Enjoy.

vastaropa nytt

-ViktoríaSig.


» 9 hafa sagt sína skoðun

31.10.2006 16:16:47 / lovísa

Plútó

Það sem maður sér aðra hverja stelpu með í dag, nánst allir eiga þessa hluti.

penZoom('14815');">

Og það er ekkert að því.. bara fyndið:)

En já ætla segja ykkur eitthvað skemmtilegra. Ég bara veit ekki alveg hvað. Ægilega er ég góður bloggari, bara næ ekki yfir þetta. En á sunnudaginn þá var sýning tvö á Öskubusku og gekk hún jafnvel og hinar ef ekki betur.. nema að einn ónefndur aðili gleymdi senu.. jájá hann var bara í tjillinu baksviðs. Kóngurinn hann já.

Ég er farin að finna alltaf meira og meira fyrir vini mínum kuldabola, eflaust hafi þið lika tekið eftir því. Búin að taka kuldaklossana fram og úlpuna. Allir þunnir jakkar inní skápa og skúffur. ég ELSKA samt vetur, en bara ef það er snjór, annars HATA ég þá. Þannig ég bíð spennt á hverjum morgni og kýki út um gluggan. Ég þekki þó nokkra sem gjörsamlega þola ekki snjó og ég bara skil það ekki. Jæja suss um snjóinn, það minnir mig bara á jólin og það er leiðinlegt að bíða og hlakka of lengi til jólanna.

Í gær fór ég í fjörheima, haha alltaf jafn fyndið þegar pizzan kemur þá ráðast allir á hana eins og við fáum aldrei að éta heima hjá okkur. haha. ég og snædís vildum með pepp og bönunum, ekki voru allir ánægðir með það. En ef þið hafið ekki smakkað það, þá bara endilega prufið, mér finnst það best:) og næst á eftir því með hakk og pepp. Nema ég fæ mér það bara með ákveðni manneskju, henni hildibjörk.:haha:

og þið sem eruð á leið til ameríku og eigið leið fram hjá California pizza kitchen, kýkið þangað inn. Allir sem hafa farið þangað ganga brosandi út með sæluna í munninum? :D Þær eru bestar.

Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, held lika að þetta sé komið gott.

Veriði sæl;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.10.2006 13:46:59 / Kristín

eeó

Jæja þá er byrjað að sýna Öskubusku, frumsýning var á Laugardaginn, og hún gekk ekkert smá vel, allveg fullur salur! og það var ekkert smá gaman:D  eftir sýninguna fengum við svo veitingar, mjög gott, og fórum við svo nokkrir krakkar heim til Trausta, í smá frumsyningarpartý og það var mög gaman.

ég hvet alla til að koma og sjá þessa frábæru sýningu, næstu sýningar eru á þriðjudaginn og uppselt á fimmtudaginn og svo næstu helgi, þú verður að láta sjá þig!!

Getið séð myndir úr partýinu á síðunni hennar Hönnu, hún var svo dugleg að taka myndir :) http://blog.central.is/-style?page=viewPage&id=1132470


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.10.2006 13:43:59 / steffy

-

Well þá er ég komin frá boston

Rosalega skemmtileg ferð,

Byrjaði á því leiðinni út að vera frammí hjá flugstjóranum, vond sæti þar. Kíkti svo aðeins framm að spjalla við viktoriu;)

Fórum á pizza california með birnu og mömmu hennar,kynntist henni þarna úti;]

svo sótti hún hulda okkur og við fórum heim til hennar, jeeesús hvað húsið hennar var flott og kósy,alveg á 4 hæðum, og þau með nýjan hund, hann hékk alltaf á buxunum á mér og var að bíta í tærnar á mér heeh,

Ja vaknaði alveg klukkan 5 á amerískum tíma, lá uppí rúmi næsta 2 og hálfan timann og gerði ekkert nema horfa útum gluggan það var rosalegt

Svo um 10 leytið fórum við í mollið;) úú me like it. Já alveg missti mig í fyrstu búðinnni. Vorum þarna í 5 tíma og ég náði að versla mér eitthvað;)

Fórum svo á newburry, held það sé skrifaði svona ja kíktum á stað sem heitir Armani, það á að vera eitthver fínn staður og svo er armani fatabúð hliðiná, þarna kemur unga ríka fólkið hah, komum þarna inn, litla Araba samkoman þarna, jæja, stelpur fara þarna til að monta sig á nýjy töskunum, 2 voru með gucci og prada toskur sem kostuðu um 2000þúsund dollara. Og svo komu 2 aðrar með ennþa dýrari töskur, en ég var nú bara með marimekko tösku heeh,

Svo fórum við uppá hótel eftir þetta og ég kíkti með birnu í mollið á móti , við vorum bara í chillinu þarna og ætluðum að fá okkur ís og vorum að prufa nuddstóla

, þá kemur mamma alveg næstum því búin að fá hjartaáfall hélt hun hefði tínt okkur og klukkutimi í að við færum uppá flugstö æj hah.

Ég hélt það væri allt til í ameriku, en nee ég spurði svona 5 manns, do you sell diamond to put on phones?, langaði í svona demanta til að setja a síma, en nei þau horfðu öll á mig eins og ég væri fáviti og sögði nei. Hmm

 

Well ó well ég er búin að henda inn eitthverjum myndum herna í aðalvalmynd;)

 

-steffý


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 23:03:38 / steffy

Boston baby

Ég kláraði að setja inn allar myndirnar síðan úr ferðinni til rvk sem við fórum með skólanum;) dugleg ég!

Þetta verður bara stutt og laggott blogg hérna hjá mér núna;)

Er að fara til Boston á morgun og viktoria líka;)

Er bara fara stutta ferð að versla með mömmu gömlu..

ein síðan í boston í janúar 06

Kannski maður bloggi þegar maður er komin heim frá boston og skelli nokkrum myndum á síðuna;)

En já var í fjörheimum í dag að klippa út hjörtu fyrir para og vina,hélvídi flott sko, ekki alveg ánægð með litina samt, gulan og bleikan ..

Ég er hvorteðer ekki að fara á balliðL

En stelpurnar og bjarni og ásgeir eru að fara í hummer limmósínu ásamt fleirra fólki á para og vina;) vonandi skemmtið ykkurJ

mér sem hefur alltaf langað að fara í límmó

Langar á para og vina  en maður getur víst ekki verið allstaðarJ

 

hahah vá þesssi er alveg 2 ára gömul mynd..

 

 

 

Well er farin að gera eitthvað

-steffý


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.10.2006 23:44:05 / Kristín

...

Gott kvöld, mér langar ekki að blogga, en Bjarni píndi mig til þess, svo ég hlít að geta komið nokrum oðrum hérna niður, best ég segji ykkur bara frá að ég og Lovísa skelltum okkur til Usa á fimmtudaginn, tókum gömlurnar með, jæja alltí góðum málum við förum í flugvélina tjillum þar í 6 tíma eða svo. Svo lendum við í Baltimore og allt gott blessað, náum í þessa Einu ég endurtek Einu tösku okkar, og förum í leigubíl upp á hótel, förum í mollið og það var bara leyfilegt að skanna, svo var haldið á California Pizza Kitchen, mmmm mjög gott, svo hótel, sofa.

Dagur 2

Við komnar eldsnemma á fætur, komnar í shopping gallan og út í bíl, við keyrum og erum komnar fyrir utan eitthverja skóbúð löngu fyrir oppnun, og biðum á húninum þangað til maðurinn neyddist til að opna og við réðumst á hillurnar, eftir það var mollið næst. Ég og Lovísa áttum fullt í fangi með að hlaupa á eftir mæðrum okkar með pokana, meðan þær geysuðust úr einni búð í aðra og alltaf hlupum við á eftir. Það var lítið borðað í þessari ferð enda engin tími, við fengum rétt svo morgunmat hádegismat og kvöldmat. Eftir að hafa verið í mollinu allan daginn fórum við uppá hót zzzzzzzzzz...

Dagur 3

Vakna snemma, aftur í sömu skóbúð og daginn áður til þess að skila skónum, Svo í apótek, aftur moll, verlsa meira. Heim á hótel að pakka. Ég og Lovísa fórum svona 7 sinnum niður í lobbí að sækja ýmsa hluti fyrir mömmurnar, og svo var okkur hent út meðan jólagjöfunum var pakkað niður, allt í lagi allt komið í tölsur allir vel snyrtir og klæddir og tilbúnir að fara í flugið heim, þær voru búnar að panta leigubíl og þær pöntuðu mjög stóran bíl því að við vorum með 11 töskur, já 11 töskur. Við komum niður og við okkur blasir þessi örsmái bíll, við ekki í góðum málum. Panta þurfti annan leigubíl. Allt í lægi með það við komnar upp á flugvöll þá tekur chek-in við. Við með of þunga tösku, þetta heldur áfram við förum í vopna leit, nei nei ræðst ekki bara konan á töskuna hennar mömmu og byrjar bara að tína upp maskara, meik, og alskonar krem,það má ekki fara með vökva í flugvél lengur, í fyrsta lagi síðan hvernar hefur maskari verið vökvi, í öðru lagi hvernig er hægt að búa til sprengju úr MEIKI!!! jæja mamma þurfti því að tjekka töskuna inn, og svo aftur í VOPNALEIT!!!

jæja næst flugvél- sofa- lenda - VOPNALEIT!!!, fjandin hafi það það er önnur vopnaleit þegar maður lendir í í Keflavík, hvað gæti ég hugsanlega verið komin með í töksuna síðan í vopnaleitinni í Ameríku? ég bara spyr.

og Mamma sem sagðist vera var að fara með mig í frí, þetta vara nú bara full time job frá morgni til kvölds, en þetta var samt sem áður allveg frábæt ferð og ég vil bara þakka ferðafélugun fyrir frábæra ferð:)

Lúls og ég að skipuleggja sprengjuárás með maskaranum hennar mömmu.

Kristín Sigurðardóttir

já ætla líka að skjóa því inn að hann Viðar á 18 ára afmæli í dag, við í snailmail óskum þér innilega til hamingju;*


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 18:36:52 / snailmail

Betra er að drepa tímann en sjálfan sig

:) Ég veit aldrei hvernig ég á að byrja svona blogg enda er ég ekkert pró á svona bloggsíður kann ekki neitt á þetta. En ég sit bara heima og hef ekkert betra að gera en að blogga, jú kannski læra en það er miklu skemmtilegra að blogga þannig ég ætla bara að gera það frekar. Ég ætlaði að vera voðalega dugleg og í spinning en nei ég missti af strædó útaf því klukkan á tölvunni er vitlaus hún er tíu mínutum of sein og svo er enginn heima til að skutla mér. Nú fæ ég örugglega stórar skammir frá Viktoríu þegar hún er búin í spinning. Hún er einmitt alltaf að röfla að ég eigi að fara hugsa meira sjálfstætt hún nennir ekki að hugsa lengur fyrir mig en núna er ég með góða afsökun að hafa misst af strædó því það var klukkunni að kenna. Ég er alveg fegin að hafa misst af strædó því spinning er algjör kvöl og pína skal ég segja ykkur það er miklu betra að sitja bara í tölvunni að slappa af og hlusta á lagið Stelpan sem starir á hafið með Heru. Elska þetta lag :)

Í dag fór 10 bekkirnir í ferðalag uppá Kjalarnes að skoða svæðið þar sem Kjalnesingasaga á að hafa gerst á. Það var ekki mikið að sjá nema tún og sveitabæjir, það var mjög gaman. Fórum svo á Pizza Hut og það var bara all you can eat, eitthvað fyrir mig hahaha :D neinei ég borðaði ekkert það mikið, bara smá ;), fórum í keppni hver gat borðað mest og hann Bjarni Reyr vann hann borðaði 9 eða 10 pizzur alveg merkilegt og svo ís á eftir mmm það er best. Það voru teknar alveg fullt af myndum sem koma væntanlega inná, vonandi fljótlega það fer eftir því hvað Steffý er dugleg. Myndirnar eru samt bara flestar af okkur, það var ekki mikið annað til að taka myndir af.

Svo eru Lovísa og Krístín farnar frá okkur til Ameríku, ég sendi þær með lista til að kaupa fyrir mig :D hann var samt ekkert langur,, Í gær átti amma mín afmæli það var svaka veisla hér heima því  hún varð 80 ára og svo á sunnudaginn á Viðar afmæli en hann verður bara 18, þannig það er búið að vera nóg að gera hjá mér að finna afmælisgjafir. En nú er þetta komið gott þarf að fara læra svo ég geti gert eitthvað annað í kvöld.

 

Ég og amma sæta :)                                      Og svo ég og litla sæta frænka mín

Sé ykkur ;) -Anný Rós


» 8 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 14:03:28 / ViktoríaSig

make a happy face.

hellú:), heyrðu helgin hjá mer var svona svakalega góð, fór til þorlákshafnar að spila á fiðluna, :D spilaði alls i eitthvað 10 tima um helgina, ekki leiðinlegt;) en eg og hildur gerðum gott úr þessu, og andri snær bjargaði helginni eiginelga:D ef þið þekkið ekki þann kauða, þá missiði af miklu, skarkalega? svo næstu helgi er eg að fara aftur útá land að spila með færeyingum. Hversu fagurt líf? en maður brosir í gegnum þetta. Eennnneen á föstudagin keyrðu Leonard og pabbi á fjorhjolnum austur, æh svo sætir feðgar:D voru eikhverja tima á leiðinni, alveg komnirmeð fjorhjola æði, buinað kaupa 3 á 2vikum, alveg að missa sig greyin:) hehe eenn haldiði ekki að mamma hafi fundið myndavelina mina eftir dauðaleit, vitir menn hún var á borðinu fyrir framan sjónvarpið:D ahahahaaha... 

<3:*:D

En nú ætla ég að vera dugleg að drita inn myndum hingað inn:D verður nóg að skoða hérna;).. boston svo eftir rúma viku, og Tristan kemur:D en hey, hvernig líst ykkur á hittast öll einhverntiman i vikunni og hafa kósý snailmail kvöld?:D iii like it.. eða anný ertu að vinna á kfc alla vikuna? heeeeee!:D en eg ætla ekki að hafa þetta of langt.

     -Viktoría.


» 8 hafa sagt sína skoðun

14.10.2006 22:39:10 / snailmail

Jooo homies

  1. Jooooo homies
  2. Ein önnur ruddaleg siða komin i loftið
  3. Mitt fyrsta blogg
  4. Einnig eitt af þeim siðustu
  5. Enn eg mun vera duglegur a myndavelinni  
  6. Er heima hja astros ,, erum að biða eftir að anny se buin að vinna
  7. Anny vinnur a KFC
  8. Erum siðan að fara þangað
  9. Kv Bjarni Reyr

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.10.2006 11:44:17 / lovísa

:)

Hæhæ:lol: hvað segiði.. eru ekki allir hressir svona á týpiskum laugardegi? Grenjandi rigning.  Allavega fór ég á fætur kl 8, já rétt. Fór að dæma litlar stelpur í fimleikum, eða meira bara svona brosa og segja flott hjá þér, þar sem það er ekkert mikið hægt að dæma þær. Ég og Hanna flottar þarna, með okkar gervibros á vör. Aumingja litlu stelpurnar haha. Akkurat núna ætti ég að vera taka til, herbegið mitt hefur sjaldan verið jafn skítugt, ætla fyrst aðeins að blogga:haha:

Í gær fór ég,kristín,ástrós,snædís,seffý,bjarnig og ásgeir í fjörheima á hrekkjavökuball. vorum þarna í smá stund og fórum svo heim til ömmu, bjarnig og ásgeir fóru svo aftur í fjörheima en ekki við. Allt í einu hringir dyrabjallan, er það ekki hún anný með KFC handa okkur:P Alltaf gott að fá sér smá kfc svona kl 11 á kvöldin. Smjöttuðum á kjúlla með BBQ mm mér langar í einn núna.

Langaði lika að segja ykkur að ég og kristín erum að fara til baltemore á fimmtudaginn:D með mömmum okkar. Þessa dagana er ég föst inná fatabúðasíðunum forever21, abercrombie og hollister. Langar í svo margt í Urban en hún er ekki í baltemore. vesen það. Er með borvel uppí eyrnum á mér núna, er að verða brjáluð, það er verið að innrétta baðherbergið aaa... pant ekki vera smiður:) væri heyrnalaus.

Farin að þrýfa:haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 20:48:31 / ViktoríaSig

aaaloha

Kvöldið.. við erum 8 snillingar komnir saman í þessi mögnuðu síðu:D 

 

Kristín                                                               Steffý             Anný

    

                   Lovísa                                           Viktoría

 

Ástrós                                                    Bjarni                                                                               Ásgeir

                                      -Snailmail.


» 2 hafa sagt sína skoðun